Guðmundur Kjartansson stendur sig vel á lokuðu móti í Danmörku, Copenhagen Chess Challenge. Tefldar eru tvær skákir á dag alla dagana nema fyrsta daginn og því var aftur tvöfaldur dagur á dagskrá í dag. Guðmundur fékk 1,5 vinning úr skákunum tveimur, alveg eins og í gær!

Í fyrri umferðinni mætti hann Svíanum sókndjarfa, GM Johnny Hector (2438). Upp kom Sikileyjarvörn og Guðmundur í góðum gír í miðtaflinu og náði sér líklegast í aðeins betra tafl. Hector fann vel tímasetta skiptamunsfórn þar sem hann fékk einnig nokkur peð með í kaupbæti og skákin virtist alltaf ætla að stefna í jafntefli eftir það.

Í seinni skákinni mætti Guðmundur danska alþjóðlega meistaranum Martin Haubro (2390) frá Danmörku. Guðmundur hafði hvítt og upp kom Catalan-byrjun. Daninn náði undirtökum í miðtaflinu og Guðmundur ákvað að gefa skiptamun sem hann hafði lengst af ekki nægar bætur fyrir en vann sig vel inn í skákina. Þegar leið á vann hvítur skiptamuninn til baka og tók svo yfir og vann skákina.

Guðmundur því taplaus með 5 vinninga eftir 7 umferðir og situr einn í þriðja sæti.

Mótið klárast á morgun með enn einum tvöföldum degi.

Copenhagen Chess Challenge er lokaður GM flokkur með 10 keppendum þar sem tefldar eru 9 umferðir, allir við alla. Tefldar eru tvær umferðir á dag, alla daga nema fyrsta daginn.

- Auglýsing -