Fimmta umferð á Opna Norðurlandamótinu fór fram í Niðarósi (Þrándheimi) í Noregi. Enginn sigur náðist í dag, jafntefli hjá Hjörvari en tap hjá Olgu.
Hjörvar (2,5 af 4) mætti Piu Cramling (2437) í fimmtu umferðinni og hafði hvítt. Hjörvar fékk ívið betra tafl með hvítu gegn Sikileyjarvörn og hafði betri peðastöðu. Hjörvari tókst ekki að smíða neitt úr því og Pia varðist mjög vel og jafntefli niðurstaðan.
Skák Olgu (1,5 af 4) gegn FM Trygve Dahl (2193) var ekki í beinni útsendingu. Olga tapaði skákinni.
Í sjöttu umferð hefur Hjörvar hvítt gegn WIM Sheilu Barth Stanford (2135) sem hefur teflt með norska kvennalandsliðinu. Olga hefur hvítt gegn Bernhard Mistelbauer (1867).
Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.


















