Hannes að tafli á EM einstaklinga í Natura 2021.

Hannes Hlífar Stefánsson byrjaði mjög vel á fyrri keppnisdegi á tveggja daga alþjóðlegu atskákmóti, XXVI Guanche de Plata. Að loknum fimm umferðum hafði Hannes 4,5 vinning og deildi efsta sætinu.

Í sjöttu umferð mætti Hannes Bojan Kurajica (2393), reyndum króatískum stórmeistara. Þeir skildu jafnir en skákin var ekki beint. Fjögur efstu borðin voru sýnd beint en Bojan telfdi á föstu borði sem var ekki beint eins og andstæðingur Hannesar í sjöundu umferð sem var stórmeistarinn Salvador Del Rio De Angelis (2384). Sú skák reyndist eina tapskák Hannesar og dýrkeypt í keppninni um efsta sætið.

Hannes kláraði mótið svo þokkalega. Í áttundu umferð gerði hann jafntefli við argentískan FIDE meistara Fransisco Fiorito (2287). Hannes fékk hættulega sókn og hartnær unnið miðtafl en Argentínumaðurinn slapp í endatafl sem hann náði svo að halda.

Hannes kláraði svo mótið með sannkölluðu „glanspartý“ í lokaumferðinni. Hannes hafði þá hvítt gegn FM Jose Reyes (2264) og blés til sóknar gegn Sikileyjarvörninni!

11.Re6! var skemmtilegur leikur sem skapaði mikil vandamál fyrir svartan.

Svartur brást ekki vel við og stuttu seinna skall önnur bomba 15.Hxf6! og varnir svarts hrynja!

Lokaniðurstaðan sjötta sætið en Votjetch Plat varð hlutskarpastur með 7,5 vinning, vinningi á undan Hannesi.

 

- Auglýsing -