Íslandsmeistari Helgi Áss með gripi góða eftir verðskuldaðan sigur á Skákþingi Íslands 2024. — Ljósmynd/SÍ

Fjórða umferð var tefld í dag á Spilimbergo Open, opnu móti á Ítalíu í samnefndum bæ Þeir Helgi Áss Grétarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefla á mótinu og áttu óliku gengi að fagna. Helgi Áss lagði stigalægri andstæðing en Aleksandr tapaði í langri skák gegn alþjóðlegum meistara.

Aleksandr (2,5 af 3) mætti alþjóðlega meistaranum Mahdi Gholami (2496) frá Íran og hafði svart. Teflt var drottningarbragð. Sá íranski náði að vinna peð í miðtaflinu.

31.Hxg7!? var smekklegur þar sem skák á g4 vinnur hrókinn á c8 til baka. Sasha þurfti nú að verjast með kjafti og klóm og gerði það! Hann komst í drottningarendatafl, fyrst peði undir en jafnaði svo peðin.

Hvítur hafði alltaf fína pressu en staðan var fræðilegt jafntefli á kafla en á endanum náði Íraninn að snúa á okkar mann.

Betur gekk hjá Helga Áss en hann hafði einnig svart gegn FM Christian Palozza (2238) frá Ítalíu. Helgi vann sig úr aðeins lakari stöðu í byrjuninni og við tók barátta í jöfnu miðtaflinu. Helgi tók yfirhöndina en náði ekki að klára andstæðing sinn.

T.d. hefði 37…Df2! nánast klárað dæmið hér þar sem samblanda af hótunum á borð við …f5 og að taka á g2 og skáka á f3 ef hrókurinn færir sig ætti að tryggja vinning. Þess í stað kom 37…Kf7?! og mikla baráttu og tækni þurfti til að klára skákina. Helgi kláraði þó það verkefni af sinni alkunnu seiglu og baráttugleði.

Í fimmtu umferð fá þeir báðir hvítt. Helgi mætir IM Alexander Bertagnolli (2335) en Sasha hefur hvítt gegn FM Jarocka Liwia (2217) frá Póllandi.

Spilimbergo Open er 9 umferða opið mót sem fram fer í ítalska bænum Spilimbergo frá 9-15. ágúst. Mótið er fyrir skákmenn yfir 2000 elóstigum með yfir 150 skákmenn. Belginn Daniel Dardha er stigahæstur keppenda of meðal þátttakenda er YouTube-stjarnan Levy Rozman sem eltist nú við stórmeistaratitilinn. Helgi Áss er númer 12 í stigaröðinni og Aleksandr er númer 30. Tímamörk eru 90+30

- Auglýsing -