
Framundan er árlegt Evrópumót ungmenna. Í ár er metþáttaka hjá Íslendingum en 23 íslenskir keppendur eru skráðir til leiks á þetta árlega mót sem að þessu sinni fer fram í stórborginni Prag í Tékklandi.
Hluti hópsins fór fyrr út og tók þátt í EM ungmenn í at- og hraðskák. Þeir sem tóku þátt í atskákinni voru:

Eins og sjá má gekk upp og niður hjá íslensku keppendunum. Stigalega kom Karma Halldórsson best út úr mótinu og hækkaði um 47 atskákstig. Karma fékk 4 vinninga, Birkir og Markús Orri komu næstir með 3,5 vinning.
Úrslit í hraðskákinni voru eftirfarandi:

Tefldar voru tvær skákir við hvern andstæðing þannig að þetta 9 umferða mót varð í raun 18 hraðskákir. Sveiflurnar voru því töluverðar. Birkir Hallmundarson kom best út úr hraðskákinni, vinningalega séð.
Sigurbjörn Hermannsson hækkaði duglega í hraðskákinni, enda verið duglegur að fá æfingu þar t.a.m. á U25 hraðskákæfingum!
Framundan er eins og áður segir EM ungmenna. Þetta mót er gríðarlega mikilvægt í uppbyggingu og þjálfun okkar ungmenna og gaman að sjá þennan mikla fjölda mæta til leiks.
Í för til Prag verða þrír þjálfarar sem munu hjálpa krökkunum eins og þeir geta! Ingvar Þór Jóhannesson, Daði Ómarsson og nýráðinn skólastjóri Skákskólans Björn Ívar Karlsson. Auk þess mun Gauti Páll Jónsson hoppa frá Póllandi og yfir til Tékklands til að hjálpa með síðustu umferðirnar.
Þessi mót eru mjög mikilvæg reynsla og mótandi fyrir krakkana og vonandi ná allir að gera eins vel og hægt er!















