Jósef Omarsson - Mynd: Omar

Íslensku keppendurnir á EM ungmenna í Prag halda áfram að hækka vinningatölu sína en alls komu 10 vinningar í hús í 3. umferð.

Mikill hiti var í Prag í dag og fór hann hæst í 33°. Keppendur fundu fyrir hitanum því loftkælingin í keppnissölunum virtist ekki ráða við ástandið. Uppskeran var nú samt sem áður nokkuð góð hjá íslensku keppendunum.

Jósef Omarsson, Markús Orri Jóhannsson og Theódór Eiríksson unnu allir stigahærri andstæðinga. Einnig unnu Örvar Hólm, Sigurður Páll, Mikael Bjarki, og Halldóra sínar skákir. Karma, Katrín Ósk, Katrín María, Gunnar Erik, Benedikt og Sigurbjörn gerðu jafntefli.

Úrslit 3. umferðar
Markús Orri Jóhannsson við taflborðið – Mynd: Jóhann
Theodór Eiríksson lagði stigahærri andstæðing í sínum fyrsta sigri á Evrópumóti – Mynd: Eiríkur

Að lokinni 3. umferð eru Jósef og Guðrún Fanney efst íslensku keppendanna með 2 vinninga.

Pörun 4. umferðar

Framhaldið:

Umferðir hefjast öllu jöfnu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sýnt er beint frá efstu borðum hvers aldursflokks.

Um mótið:

EM ungmenna í skák 2024 fer fram í Prag, Tékklandi. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.

Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar KarlssonDaði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson tekur svo þátt í seinni hálfleik að lokinni taflmennsku í Póllandi.

- Auglýsing -