Baráttukona Olga Prudnykova stóð sig vel í Þrándheimi. — Ljósmynd/Erik. R. Bang

Hjörvar Steinn Grétarsson og Olga Pruydnykova voru fulltrúar Íslands á Norðurlandamótinu í skák sem lauk sl. miðvikudag í Þrándheimi með sigri sænska alþjóðameistarans Jung Min Seo sem hlaut 7 vinninga af 9 mögulegum. Þetta var ekki Norðurlandamót í þeim skilningi sem áður var, heldur opið mót, Lewis chess legends 2024, en heitið vísar til afdrifa frægra taflmanna sem frændur okkar fullyrða að sé þeirra smíð og hafi lagt upp í siglingu frá norskum ströndum en síðan hafi fleyið brotnað í spón við skosku eyjuna Lewis. Um þetta atriði eru deildar meiningar hér á landi. Með aðkomu sinni gaf norræna skáksambandið mótinu aukið vægi þannig að sigurvegarar karla og kvenna hlutu Norðurlandameistaratitil.

Mér fannst blasa við að fulltrúar okkar, Hjörvar Steinn og Íslandsmeistari kvenna, Olga Prudnykova, ættu möguleika í toppbaráttunni; í mótslok hafði Olga náð bestum árangri kvenna ásamt Piu Cramling með 5½ vinning af 9. Sú sænska reiknaðist með fleiri mótsstig og er því Norðurlandameistari kvenna. Nú eru næstum 50 ár síðan Pia þessi barðist um þennan titil við Guðlaugu Þorsteinsdóttur, einnig í Noregi. Guðlaug hafði betur.

Hjörvar Steinn Grétarsson hlaut 6 vinninga af 9 mögulegum og hafnaði í 5. sæti. Árangur hans er viðunandi en þó eilítið lakari en búast mátti við fyrir fram.

Olga Prudnykova kom hingað til lands skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu og fékk þá stöðu flóttamanns. Hún hefur búið hér síðan ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Á EM landsliða í Svartfjallalandi í fyrra fannst mér stíll hennar merkilega ólíkur margra landa hennar. Það virtist sem allt léki á reiðiskjálfi í skákum hennar. Lítum á spennandi viðureign í skák sem tefld var undir lok mótsins í Þrándheimi:

Olga Prudnykova – Jovana Eric

Larsensbyrjun

1. b3 d5 2. Bb2 Rf6 3. Rf3 Bf5 4. Rh4 e6 5. Rxf5 exf5 6. e3 Bd6 7. Df3 g6 8. g4!

Öflugur leikur eftir slæma byrjun svarts.

8. … 0-0 9. gxf5 Rbd7 10. Rc3 c6 11. 0-0-0 a5 12. a4 De7 13. Kb1 Ba3 14. Ba1 b5 15. h4!

Peðsókn hvíts er mun hættulegri en sú sem svartur reynir að hefja.

15. … Re5 16. Df4 Bd6 17. Dg5 Reg4 18. fxg6 fxg6 19. h5 Rxf2 20. hxg6!

Hikar ekki við að fórna hróknum.

20. … Rxh1

21. gxh7+?

Smá ónákvæmni. 21. Bxb5 strax var sterkara.

21. … Kh8 22. Bxb5! Rf2

23. Bxc6!?

Önnur mögnuð ákvörðun, 23. Hf1 ætti að leiða til vinnings.

23. … Rxd1 24. Rxd5 Dg7 25. Dxg7+ Kxg7 26. Rxf6?

Feilspor. 26. Bxa8 Hxa8 27. Rxf6 ætti hvítur að vinna.

27. … Had8 27. Rg4+ Kg6!

Snýr taflinu við, 27. … Kxh7?? strandar á 28. Be4+ Kg8 29. Rh6 mát!

28. Be4+ Kg5 29. Re5 Bxe5 30. Bxe5 Rf2 31. Bc6 Rg4 32. Bg7 Rf6 33. Bxf8 Hxf8

Merkileg staða þar sem svartur er hrók yfir gegn fimm peðum hvíts og hér gat Olga leikið 34. b4!sem tryggir jafntefli að mati „vélanna“.

34. Kb2 Rxh7 35. b4 Hb8 36. Bb5 axb4 37. Kb3 Kf6 38. Kxb4 Ke7 39. c4 Rf6 40. d4 Kd6 41. a5 Hh8 42. a6 Kc7 43. d5 Hh3 44. Kc5 Re4+ 45. Kd4 Rd6?

Og hér missti svartur af vinningi með 45. … Hh4!

46. Bc6 Hh4+ 47. Kd3 Kb8 48. c5 Rc4 49. Bb5 Re5+ 50. Kc3 He4 51. d6 Hxe3+ 52. Kd4 He1 53. c6 Rf7 54. c7+ Kc8 55. Kc5 He5+?

Hrikalegur afleikur. Eftir 55. … Ha1 er staðan jafntefli.

56. Kc6 He6

57. a7 Hxd6+ 58. Kc5 Kxc7 59. a8(D)

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 10. ágúst 2024

- Auglýsing -