Sjötta útgáfan af opna San Cristóbal de La Laguna 2024 mótinu á Tenerife hófst í dag. Meðal keppenda eru þrír ungir og efnilegir íslenskir titilhafar. Þeirra fremstur í flokki er Vignir Vatnar Stefánsson sem er næststigahæstur á þessu 94 manna móti. Aleksandr Domalchuk-Jonasson er númer 18 í stigaröðinni en Dagur Ragnarsson númer 24.
Í fyrstu umferð tefldu þeir allir niður fyrir sig og unnu sigra. Vignir og Aleksandr voru í beinni útsendingu.
Vignir hafði svart gegn Sergio Hernandez (2151) og upp kom lokuð Sikileyjarvörn. Staðan umbreyttist í nokkurs konar Benoni og það mjög góða útgáfu á svart. Vignir hafði virka stöðu og vann vel úr henni, auðveldur sigur og fín byrjun.
Aleksandr virtist líka ná nokkuð auðveldum sigri með svörtu mönnunum en hann mætti George Zhao (2014). Upp kom Catalan og virtist Aleksandr hafa sitt á hreinu náði nokkuð auðveldlega í tvo menn fyrir hrók og hvítu reitirnir í herbúðum hvíts voru nánast óverjanlegir.
Skák Dags ekki í beinni eins og áður sagði en hann vann og þeir hafa allir einn vinning.
Á morgun er tvöfaldur dagur, sá eini á mótinu. Pörun liggur ekki fyrir að svo stöddu.














