Sunnudagskvöldið 25. ágúst er komið að undanmóti fyrir Íslandsmótið í Netskák. Að þessu sinni er Íslandsmótið í samstarfi við Rafíþróttasamband Íslands, metverðlaunafé og úrslitamótið þar sem tefld eru útsláttareinvígi verða í beinni útsendingu hjá Sjónvarpi Símans!
Undanmótið er eins og áður segir á sunnudaginn og hefst klukkan 19:30, ÞRJÚ sæti verða í boði í aðalmótið!
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram og er það gert á eftirfarandi tengli:
Einnig er nauðsynlegt að skrá sig í Team Iceland hér: https://www.chess.com/club/team-iceland
Þegar það er klárt verður sendur tengill á mótið, mun allt skýrast þegar nær dregur!
Verðlaun í undankeppni:
  1. 30.000 kr. auk þátttökuréttar
  2. 20.000 kr. auk þátttökuréttar
  3. 10.000 kr. auk þátttökuréttar
U2000: 10.000 kr.
U1600: 10.000 kr.
Til mikils er að vinna að komast í útsláttarmótið en þar verða einvígin í beinni útsendingu á sunnudagskvöldum í Sjónvarpi Símans en nánar má lesa um aðalmótið hér að neðan:
Verðlaunafé 2024/2025: 1.000.000 kr.!
Skráningargjald: 0 kr.
Fyrirkomulag:
  • Umhugsunartími: 3 mínútur + 2 sekúndur á leik
  • Tíu skáka einvígi í hraðskák
  • Verði jafnt er tefld bráðabanaskák, hvítur hefur 5 mín + 2 sek og þarf að vinna, jafntefli dugar svörtum
  • 16 keppendur tefla í útsláttarkeppni (e. single elimination)
Þrír efstu úr undankeppni fá sæti í mótinu og fengu einnig 13 keppendur boðssæti – þeir eru eftirfarandi í stafrófsröð:
  1. IM Aleksandr Domalchuk (2386)
  2. IM Björn Þorfinnsson (2356)
  3. GM Bragi Þorfinnsson (2379)
  4. GM Guðmundur Kjartansson (2474)
  5. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2473)
  6. GM Helgi Áss Grétarsson (2485)
  7. GM Helgi Ólafsson (2466)
  8. IM Hilmir Freyr Heimisson (2392)
  9. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2498)
  10. GM Jóhann Hjartarson (2472)
  11. WIM Olga Prudnykova (2268)
  12. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2500)
  13. GM Þröstur Þórhallsson (2385)
Tímasetning: annað hvert sunnudagskvöld kl. 19:00 – 21:00
Dagsetningar 2024:
  • Undankeppni: 25. ágúst 2024, kl. 19:30,
  • Íslandsmótið í netskák: 8 sunnudagar: 8 september- 8 desember 2024.
Skráning í undankeppni:
- Auglýsing -