
Tvær skákir voru tefldar í dag á opna San Cristóbal de La Laguna 2024 mótinu á Tenerife. Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson áttu ágætis dag þó ýmislegt gengi á. Þeir sija í öðru sæti ásamt fleiri skákmönnum með 2,5/3. Dagur Ragnarsson tapaði fyrri skák sinni í dag þar sem hann var nánast búinn að máta alþjóðlegan meistara.
Í fyrri umferð dagsins sem var 2. umferð mótsins voru Íslendingarnir allir í beinni. Vignir lenti í furðulegu atviki í byrjun gegn alþjóðlegum meistara frá Perú, Willyam Espinoza Palomino (2346). Það var eins og þeir væru báðir illa upplagðir í morgunumferðina.
Í einni þekktustu byrjunarstöðu í skák í spænska leiknum virðist Perúmaðurinn algjörlega ruglast og leikur 5…0-0?? í stað 5…b5 sem er aðalleikurinn. Í stað þess að drepa nú á c6 og vinna e5 peðið lék Vignir þess í stað 6.c3? að bragði og Perúmaðurinn slapp!
Þetta virðist hafa slegið Vigni eitthvað út af laginu og hann slapp svo kannski sjálfur þegar andstæðingur hans sættist á þráleik með nokkuð betra tafl.
Dagur Ragnarsson var að tefla algjört meistarastykki af skák. Hann gjörsamlega yfirspilaði alþjóðlega meistarann Daniel Eduardo Marin Pulvett (2482). Eftir öllum kúnstarinnar reglum var sá spænski nú við það að verða mát í u.þ.b. 6 leikjum miðað við bestu taflmennsku
Hér hefði 35.Bxf5 einfaldlega skilið svartan eftir varnarlausan. Eftir skák á f2 kemur einfaldlega Kh4 og allar skákir eru valdaðar. Dagur hlýtur að hafa misst af því. Þess í stað lék hann 35.Kxf5? sem er samt ennþá unnið en missir af þvinguðu máti.
Stuttu síðar fór hvítur úr öskunni í eldinn og missti unnið tafl niður í aðeins verra tafl með góðum jafnteflissénsum og svo hreinlega niður í tap. Mjög grátlegt tap, vægast sagt!
Aleksandr bjargaði heiðri okkar í þessari umferð með því að murka út baráttuþrekið hjá spænskum CM sem var að reyna að hanga á jafntefli gegn Catalan…gekk ekki!
Vignir var mun líkari sjálfum sér í seinni skák dagsins. Þar hafði hann svart og yfirspilaði alþjóðlegan meistara frá Uruguay jafnt og þétt og virtist sigurinn aldrei í hættu.
Aleksandr gerði jafntefli í umferðinni við andstæðing Dags úr 2. umferð. Aleksandr hafði aðeins verra tafl en stýrði skákinni í mislita biskupa. Öllum var ljóst í hvað stefndi en sá spænski þráaðist við í kjánalega marga leiki áður en hið óumflýjanlega raungerðist, jafntefli.
Dagur gerði jafntefli við 2100-stiga Þjóðverja, eflaust enn sleginn eftir morgunumferðina.
Vignir og Aleksandr hafa 2,5 vinning af 3 og eru í skiptu öðru sæti ásamt fjölda skákmanna. Dagur hefur 1,5 vinning eftir erfiðan dag.
Á morgun er aftur einföld umferð og verður út mótið.













