
Ungu íslensku skákmennirnir halda áfram að gera það gott á erlendri grundu. Í dag lauk fjórðu umferð á opna San Cristóbal de La Laguna 2024 mótinu á Tenerife. Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson unnu báðir sínar skákir í beinni og eru efstir ásamt öðrum með 3,5 af 4. Dagur Ragnarsson vann einnig sína skák og kvittaði fyrir erfiðan gærdag. Fullt hús í dag, ekki amalegt!
Vignir mætti stórmeistara frá Uruguay, Alejandro Hoffman (2366). Miðað við taflmennsku Uruguay-mannsins má líklegast færa sterk rök fyrir því að morgunkornið Cheerios fáist í heimalandi hans. Miðað við taflmennskuna í þessari skák hlýtur hann að hafa fundið stórmeistara-skirteinið sitt í Cheerios-pakka!
11…Da5? er átakanlega kjánalegur leikur og Vignir vann eins auðveldan sigur og hægt er að vinna gegn stórmeistara.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson var líka með andstæðing frá S-Ameríku. Argentíski alþjóðlegi meistarinn Joaquin Fiorito (2403) veitti töluvert meiri mótspyrnu en andstæðingur Vignis. Tefldur var furðulegur varíantur í kóngsindverja þar sem drottningarriddari svarts fer til h6. Það sem er kannski furðulegra er að þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar sem að Domalchuk lendir í þessum varíant.
Hvítur vinnur mann í kjölfarið en svartur hefur hættulegar bætur. Aleksandr nær að halda stjórn á stöðunni meistaralega og virtist við það að hanga á manninum og „konsólidera“ þ.e. einfalda stöðuna og stoppa allt mótspil. Í 30. leik missir Aleksandr hinsvegar þráðinn og skákin orðin jöfn…Aleksandr þarf eiginlega að vinna skákina aftur!
Vonir vöknuðu eftir 37…c4?? fljótfærnisleik hjá Argentínumanninum sem reyndi að setja tímapressu á Aleksandr sem var í sínu venjulega tímahraki meðan Fiorito hafði nægan tíma.
38.Hb5! leiðir skyndilega til hróksendatafls sem er kolunnið. Svartur hefur ekki tíma í 38…Dxc3 vegna 39.Hxb8+ sem er með skák! Eftir 38…Ha8 lék Aleksandr ónákvæmt. 39.Dxg7! hefði unnið auðveldlega þar sem hvíti kóngurinn labbar og tekur c4-peðið.
Sama hugmynd kom upp síðar þó Aleksandr þyrfti tvær tilraunir til að finna vinningsleiðina. Lærdómsríkt endatafl!
Dagur Ragnarsson var beittur í drottningarbragðinu gegn sínum andstæðing. Spánverjinn Carlos Martinez (2051) var klárlega tveimur til þremur klössum slakari en Dagur og vann Fjölnismaðurinn auðveldan sigur.
Vignir og Aleksandr hafa 3,5 vinning af 4 og eru efstir ásamt þremur öðrum. Dagur hefur 2,5 vinning.
Í fimmtu umferð á morgun hafa Íslendingarnir allir svart. Vignir hefur svart gegn IM Mike Ivanov (2364), Aleksandr mætir Francisco Fiorito (2416) en sá hlýtur að eiga einhver fjölskyldutengsl við þann Fiorito sem hann lagði að velli í dag og loks mætir Dagur IM Daniel Rivera (2255).














