Síðustu umferðir Ólympíumótsins eru framundan. Núna klukkan 11:00 hófst tíunda umferðin.
Í opnum flokki mætum við liði Kósóvó. Helgi Áss Grétarsson hvílir. Íslenska liðið er stigahærra á öllum borðum en lið Kósóvó er orðið mjög keppnisreynt en þeir hafa haft nánast sama lið síðustu 3-4 keppnir.

Hong Kong er verkefni dagsins í kvennaflokki. Hong Kong sveitin er mjög stigalág en í henni eru hinsvegar margar efnilegar skákkonur og sveitin því ekki jafn auðveld viðureignar og hún virðist á pappír.

Pólverjar leiða gríðarlega óvænt eftir sigur á Bandaríkjamönnum í gær en í kvennaflokki hafa þær Kínversku tekið forystu einar.
Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 10.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
















