Miðgarður í Garðabæ.

Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2024 fer fram sunnudaginn, 3 nóvember í Miðgarði, fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ. Taflmennskan hefst kl. 13 á 2 og 3 hæð. Liðstjórar staðfesta lið sín ekki seinna en kl. 12:45

Boðið verður upp á 3 aldursflokka:

Opinn flokkur: Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7. umf.

B flokkur: 4-7. bekkur – 5-7 umf.

C flokkur: 1-3 bekkur – Allt að 5. umf.

Heimilt er að keppa upp fyrir sig í flokki.

Mótið er fyrir skákmenn fædda 2009 og síðar.

Tímamörk verða 8 mínútur + 3 sek á hvern leik.

Þátttökugjöld eru 8.000 kr. fyrir A lið og 4.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 20.000. kr

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra at-skákstiga. A og B lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki

Skráningarfrestur liða þarf að skila inn eigi síðar en kl. 23:59 fimmtudaginn 31. október.

Verðlaun og oddastig

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í opnum flokki, b-flokki og c-flokki

*Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum

1. Stig (match point)

2. Innbyrðis viðureign

3. Sonneborn-Berger

4. Hlutkesti

Skráningarform

Þegar skráðir keppendur

 

- Auglýsing -