Fyrsti leikurinn Margeir Pétursson sat andspænis Indverjanum Gukesh þegar EM taflfélaga var formlega opnað. Gunnar Björnsson varaforseti evrópska skáksambandsins fylgist með. — Heimasíða EM taflfélaga.

EM taflfélaga hófst í gær í Vrnjacka Banja í Serbíu. Tvö íslensk lið taka þátt, Víkingaklúbburinn og Breiðablik en auk þess tefla þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason með Gambit Booevoie frá Lúxemborg.

Margeir tefldi við sjálfan Gukesh (2794) í fyrstu umferðinni. Margeir hafði svart og komst ágætlega frá byrjuninni en þungir liðsflutningar Gukesh lönduðu honum mikilvægu peði á drottningarvæng. Eftir áframhaldandi þunga taflmennsku fór þungi hvítu stöðunnar að verða of mikill og Margeir varð að lúta í dúk.

Óskar tapaði einnig gegn sjálfum Ivan Sokolov (2589), liðsstjóra liðsins, sem tók sæti í liðinu eftir að Kiril Stockfishchenko þurfti frá að víkja af skiljanlegum ástæðum. Óskar beitti Jobava-London kerfinu en Sokolov er vel með á nótunum enda djúpt sokkinn í þjálfun og undirbúning. Ivan beitti uppstillingu sem er orðin nokkuð vinsæl og tekur að miklu leiti tennurnar úr Jobava-London.

Víkingaklúbburinn fékk sterka ungverska sveit, Sentimento Ajka. Björn Þorfinnsson og Páll Þórarinsson náðu góðum jafnteflum.

Björn hafði hvítt og ruggaði engum bátum gegn stórmeistaranum Arseniy Nesterov.

Páll var í erfiðri vörn lengst af en slakur 31. leikur ungverska stórmeistarans opnaði leið fyrir Pál til að landa jafntefli.

Breiðablik slátraði írskri sveit 6-0. Írarnir voru allir undir 2000 stigum og því góðu skyldusigur hér á ferð.

Blikar fá Werder Bremen í 2. umferðinni en Víkingar fá einnig þýska sveit en töluvert lakari.

Umferðir hefjast að jafnaði kl. 13:15.

- Auglýsing -