Lokaviðureignir sextán manna úrslita Íslandsmótsins í netskák fara fram í kvöld og hefjast kl. 20.

Fyrst  fáum við einvígi þar sem mætast: Hjörvar Steinn Grétarsson vs Vignir Vatnar Stefánsson

Hér fáum við einvígi þar sem stigahæsti skákmaður Íslands, Vignir Vatnar, mætir Hjörvari sem hélt því kefli síðast. Báðir eru sterkir í hraðskák, Hjörvar á best 2700+ hraðskákstig og var topp 20 í heiminum um tíma. Vignir er núverandi Íslandsmeistari í hraðskák. Hér má búast við hörkueinvígi!

Í seinna einvígi kvöldsins fáum við svo jálkana: Helgi Áss Grétarsson vs Jóhann Hjartarson. Þessa menn þarf vart að kynna, báðir að sjálfsögðu stórmeistarar og Helgi núverandi Íslandsmeistari í skák. Jóhann goðsögn í íslenskri skák en frægðarsól hans reis hvað hæst þegar hann lagði Victor Korchnoi að velli í Áskorendaeinvígi.

Það má búast við æsispennandi einvígjum og hvetjum við alla til að fylgjast með Íslandsmóti Símans í netskák í kvöld í beinni í Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ

Keppendur tefla 10 skáka einvígi með tímamörkunum 3+2 þannig að fyrstur í 5,5 vinning vinnur einvígið. Fari 5-5 er gripið til bráðabana.

Lýsendur í kvöld eru Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Þorfinnsson.

Styrktaraðilar eru:

COLLAB・Ljósleiðarinn・Síminn・Lengjan

- Auglýsing -