Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í dag mætti Þorvaldur Logason í Skipholtið. Í kynningu um þáttinn segir:
Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum að þessu sinni er skákmeistarinn, heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Þorvaldur Logason en hann er höfundur hinnar umdeildu bókar Eimreiðarelítan – Spillingarsaga sem kom út í lok síðasta árs. Megin þema eða inntak þáttarins er spilling og svindl í skák, þ.e. misnotkun valds. Í þættinum skilgreinir Þorvaldur þessi hugtök, hann kemur inn á elítur og valdaelítur, beitingu valdsins, s.s. úthlutun embætta, segir skemmtilegar sögur af fyrrum heimsmeisturum og forsetum FIDE. Margt annað athyglisvert barst í tal sem hlusta má á í spilara þáttarins.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -















