Frá setningu mótsins. Klappað fyrir Vishy Anand sem er á staðnum. Mynd: ECU

EM taflfélaga hefst í dag í Vrnjacka Banja í Serbíu. Tvö íslensk lið taka þátt, Víkingaklúbburinn og Breiðablik. Auk þess tefla tveir íslenskir kappar með liði frá Lúxemborg. Það eru heldur spennandi skákir framundan í dag!

Byrjum á fyrsta borði. Þar teflir Gambit Booevoie frá Lúxemborg. Í því lið eru tveir Íslendingar; Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason. Og þeir fá enga smá andstæðinga! SuperChess frá Rúmeníu.

Margeir teflir við sjálfan Gukesh (2794) sem margir telja að verða næsti heimsmeistari í skák. Óskar Bjarnason (2115) teflir við sjálfan Ivan Sokolov (2589), liðsstjóra liðsins, sem tók sæti í liðinu eftir óvænt forföll Kirils Sevchenko.

Víkingaklúbburinn fær sterka ungverska seit Sentimento Ajka. Jóhann Hjartarson mætir Evrópumeistaranum í skák, Alexei Sarana (2717).

Breiðablik fær írska sveit í fyrstu umferð.

Umferðin hefst í dag kl. 13:15. Margeir, Óskar og Víkingar í beinni!

Frá setningu mótsins í gær.

- Auglýsing -