Fjórða umferð fór fram í gær á sterku EM einstaklinga sem fram fer í Petrovac í Svartfjallalandi. Flestir af sterkustu virku skákmönnum þjóðarinnar taka þátt að þessu sinni. Íslensku keppendurnir eru:
Vignir Vatnar Stefánsson (2530) nr. 86
Hannes Hlífar Stefánsson (2485) nr. 116
Guðmundur Kjartansson (2470) nr. 122
Helgi Áss Grétarsson (2441) nr. 139
Aleksandr Domalchuk-Jonsson (2399) nr. 183
Að loknum þremur umferðum hafði Vignir Vatnar 2,5 vinning, Helgi Áss 2 vinninga en aðrir 1,5 vinning.
Vignir fékk alvöru verkefni í fjórðu umferð en þar mætti hann margreyndum úkraínskum landsliðsmanni, Anton Korobov. Korobov hefur unnið til verðlauna með Úkraínu á stórmótum og verið þeim gríðarlega mikilvægur þar, mjög sterkur stórmeistari!
Þrátt fyrir fína ferilskrá Korobov virtist það ekkert hjálpa honum í dag. Vignir virtist koma honum á óvart í byrjuninni. Líklegast var 11. leikur Korobov 11.Be2 ekki nógu góður (11.Bc2 betri) þar sem biskupinn á c2 valdar allavega f5 reitinn. Vignir fékk auðvelt tafl og Korobov sá sér þann kost vænstan að þráleika áður en það yrði um seinan!
Fínt jafntefli hjá Vigni sem byrjar vel á mótinu!
Helgi Áss með 2 af 3 mætti Laurent Fressinet, Frakkanum knáa og hafði Helgi hvítt. Segja má að Helgi hafi lengst af verið í varnarhlutverki þar sem Fressinet fékk í raun mjög góða útgáfu af Benkö-bragði með svörtu í gegnum aðra leikjaröð þó. Þrátt fyrir það var Helgi inni í skákinni og tölvumatið yfirleitt i kringum 0.0. Helgi gaf þó Fressient tvo sénsa. Þann fyrri tók Fransmaðurinn ekki eftir 44.a6??
Hér hefði 44…c3! verið góður. Hugmyndin er að loka aðgengi drottningarinnar á a3 reitinn. 45.bxc3 er svarað með 45…Bh4 og hvíta drottningin fellur. Fressinet lék 44…Bh4? strax og Helgi slapp í bili en svo fór allt í skrúfuna með 47.Da1??
Hannes var lengst af „í köðlunum“ í sinni skák með svörtu. Hannes náði þó að berjast og komast inn í skákina en þegar hann var kominn vel inn í hana og við það að taka yfirhöndina fór allt í skrúfuna góðu.
Hannes stendur vel hér, á nógan tíma og 37…Df5! er vænlegur leikur með hótuninni …Dh3+. Ef hvítur leikur t.d. 38.Kh1 kemur 38…Re5 og svarta staðan er yfirgnæfandi. Þess í stað setti Hannes vitlausan mann á f5 með 37…Bf5?? og staðan snerist á punktinum. 38.He8 og skömmu síðar var svartur í mátneti og Hannes laut í dúk.
Heilt yfir var þessi umferð hálfgerð „taktísk katastrófa“. Guðmundur stakk sér til sunds og fór í skrúfuna með þeim Helga og Hannesi! Í tvísýnu miðtafli missti Guðmundur af millileik.
Gummi lék 25…Bxf2?? sem er ágætis leikur ef kóngur eða drottning tekur til baka á f2. Hvítur fann hinsvegar millileikinn 26.Hd6 og svartur tapar of miklu liði.
Aleksandr náði að bjarga þessari umferð frá því að verða algjör hauskúpa með því að leggja Ísraelann Itay Sitbon að velli. Miðtaflið var mjög órætt og alls ekki auðvelt að meta hvað var í gangi eða „who is better and why“ eins og gárungarnir spyrja stundum! Aleksandr virtist þó hafa sitt á hreinu og hafði betur.

Erfið umferð og miðað við elóstig hefði hún átt að fara betur en gleymum ekki að það er mikið af grjóthörðum ungum skákmönnum sem eru sýnd veiði en ekki gefin.
Eftir fjórar umferðir er Vignir með 3 vinninga og að standa sig best Íslendinganna. Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur nú 2,5 vinning, Helgi Áss 2 vinninga en Hannes og Guðmundur 1,5 vinning.

Vignir og Sasha fá erfiðar skákir við stórmeistara. Andstæðingur Vignis er landsliðsmaður Spánverja og erfiður viðureignar. Helgi, Hannes og Guðmundur fá allir stigalægri andstæðinga en það er ekkert samasem merki á milli þess og að vinna auðveldlega.
Skákir hefjast 14:00 að íslenskum tíma (14:15 með delay). Teflt er á hverjum degi og frídagur eftir sjöttu umferð.















