Seinni viðureignir átta manna úrslita Íslandsmótsins í netskák fara fram í kvöld og hefjast kl. 20. Einvígin í kvöld verða á milli stórmeistara og má búast við alvöru spennu og látum!

Fyrst  fáum við einvígi þar sem mætast: Bragi Þorfinnsson og Helgi Ólafsson.  Bragi vann Dag Arngrímsson í 16-manna úrslitum af öryggi á meðan að Helgi lagði Þröst Þórhallsson að velli.

Fyrirfram má búast við Helga örlítið sterkari í hraðskákinni en ef Bragi nær að stýra einvíginu þannig að það henti hans stíl betur þá getur allt gerst.

Í seinna einvígi kvöldsins fáum við alvöru stál í stál og annað „kynslóðaeinvígi“: Jóhann Hjartarson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Hjörvar lagði Vignir Vatnar að velli í 16-manna úrslitum en Jóhann náði sér í sigur gegn Helga Áss í hörkueinvígi. Jóhann og Hjörvar hafa báðir verið á sitthvorum tímanum stigahæstu skákmenn landsins og ljóst að dagsformið mun ráða miklu í þessu einvígi.

Það má semsagt búast við æsispennandi einvígjum og hvetjum við alla til að fylgjast með Íslandsmóti Símans í netskák í kvöld í beinni í Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ

Keppendur tefla 10 skáka einvígi með tímamörkunum 3+2 þannig að fyrstur í 5,5 vinning vinnur einvígið. Fari 5-5 er gripið til bráðabana.

Lýsendur í kvöld eru Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson. 

Styrktaraðilar eru:

COLLAB・Ljósleiðarinn・Síminn・Lengjan

- Auglýsing -