Mynd: Mark Livshitz

Undanúrslit á Íslandsmótinu í Netskák fóru fram á sunnudagskvöldið og sem fyrr í beinni útsendingu á rás Rafíþróttasambandsins hjá Sjónvarpi Símans og á helstu netveitum eins og YouTube og Twitch. Hjörvar náði að leggja Guðmund Kjartansson að velli í spennandi einvígi en Helgi Ólafsson hafði Björn Þorfinnsson undir.

Fyrra einvígi kvöldsins var á milli Hjörvars og Guðmundar Kjartanssonar. Þeir félagar hafa margoft teflt mikilvægar skákir í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn auk þess að vera saman í landsliði Íslands og hjálpast til við undirbúning móta. Þeir þekkja því annan ansi vel og snemma var ansi lítið sem mátti sjá á milli þeirra.

Guðmundur náði sigri strax í fyrstu skák með svörtu en Hjörvar náði að svara strax og kvitta það út. Þrjú jafntefli í röð litu dagsins ljós og allt stál í stál þegar einvígið var hálfnað.

Hjörvar spýtti í lófana og vann tvær skákir í röð og innsiglaði svo sigurinn með tveimur jafnteflum. Niðurstaðan á endanum 5,5-3,5 Hjörvar í vil í spennandi einvígi þar sem framan af var það Guðmundur sem virtist líklegri.

Seinna einvígið á milli þeirra Helga Ólafssonar og Björns Þorfinssonar varð ekki eins spennandi. Björn fann aldrei almennilega góðan höggstað á Helga og eftir að Björn missti af góðu tækifæri í peðsendatafli snemma einvígis sá hann vart til sólar. Helgi vann þrjár af fyrstu fimm skákunum og skildu þeir jafnir í hinum og Helgi því með 4-1 forystu. Björn náði að vinna eina skák en lokatölur urðu 5,5-2,5, nokkuð öruggt hjá Helga.

Það verða því kenn­arinn og læri­sveinninn, Helgi Ólafsson gegn Hjörvari Steini. Þeir munu berjast um Íslands­meist­ara­titil­inn á sunnu­dag­inn, 8. des­em­ber. Varla er við öðru að bú­ast en sú bar­átta verði þrung­in spennu og til­finn­ing­um því Helgi hef­ur lýst Hjörv­ari sem ein­um af sín­um upp­á­halds nemandum í gegnum tíðina og Hjörv­ari finnst af þeim sökum óþægilegt að mæta læriföður sínum að mörgu leiti.

Útsendinguna má nálgast hér fyrir neðan:

- Auglýsing -