Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson heldur áfram góðu gengi sínu á erlendri grundu og er nú efstur í Masters grúppu London Chess Classic.

Þrír Íslendingar tefla á London Chess Classic sem fram fer á Emirates vellinum, heimavelli Arsenal.  Íslendingarnir þrír taka þátt í Masters sem er opið mót þar sem 85 skákmenn taka þátt og er Raunak Sadwhani stigahæstur keppenda. Vignir Vatnar er númer 6 í stigaröðinni, Björn Þorfinnsson númer 26 og Björn Hólm Birkisson númer 54.

Að loknum fimm umferðum er Vignir efstur á mótinu og efstur Íslendinga með 4,5 vinninga af 5 mögulegum.

Vignir Vatnar Stefánsson vel einbeittur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Í fjórðu umferð á sunnudaginn hafði Vignir svart gegn Peter Wells. Báðir biðu átekta en í 28. leik missti Peter Wells af einhverskonar „tölvuleið“ sem hefði gefið honum vænlegt tafl. Wells missti af því og fór þess í stað í vafasamar taktískar aðgerðir skömmu síðar sem gengu enganveginn upp og Vignir hafði sigur.

Vignir fylgdi þessu eftir í 5. umferðinni með sigri gegn alþjóðlega meistaranum Matthew Wadsworth. Wadsworth þessi hefur ekki átt sjö dagana sæla gegn íslenskum skákmönnum en Björn Þorfinnsson lagði hann að velli á EM Taflfélaga með stæl á dögunum og greinarhöfundur lagði hann að velli í bresku deildakeppninni fyrir all nokkru.

Vignir með hvítu virtist í raun vinna nokkuð þægilegan tæknilegan sigur. Vignir fékk betra fljótlega eftir byrjunina, þægilegt tafl sem hann gat pressað án þess að taka áhættur. Peðsvinningur fylgdi í kjölfarið og endatafl sem Vignir vann.

Í sjöttu umferð mætir Vignir breska alþjóððlega meistaranum Marcus Harvey og hefur svart.

Í vígahug Björn Þorfinnsson við taflið á Reykjavíkurskákmótinu í fyrra. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Björn Þorfinnsson sat hjá í 4. umferð og einbeitti sér að einvígi sínu við Helga Ólafsson á Íslandsmótinu í Netskák.

Í fimmtu umferð mætti hann Englendingnum Federico Rocco og nokkuð góðan tæknilegan sigur. Björn fékk góða stöðu snemma í miðtaflinu og bætti stöðu sína nánast línulega jafnt og þétt og hafði nokkuð auðveldan sigur.

 

Björn Hólm – Svona mæta menn á sviðið!

Björn Hólm Birkisson gerði baráttujafntefli í 4. umferð gegn Íranum Matthew Dignam. Sá írski náði fínni pressu en Björn varðist vel.

Í fimmtu umferð var Björn með velsku landsliðskonuna Oliviu Smith algjörlega í köðlunum nánast alla skákina. Einbeitingarleysi og tímahrak kostaði Björn hálfan vinning í endataflinu sem hann náði ekki að vinna.

Taflmennskan heldur áfram í sjöttu umferð þriðjudaginn 3. desember.

- Auglýsing -