Eftir miklar sviptingar undanfarna daga virðast málin ætla að sjatlast…allavega tímabundið á milli Magnus Carlsen og FIDE. Magnus Carlsen mun taka þátt á Heimsmeistaramótinu í hraðskák í New York og freista þess að verja Heimsmeistaratitil sinn þar.
Eins og þekkt er orðið hætti Magnus Carlsen keppni á degi tvö í atskákinni eftir „Stóra-Gallabuxnamálið“ þar sem Carlsen var fyrst sektaður og svo ekki paraður í 9. umferð þar sem hann mætti til leiks í gallabuxum. Þetta fór illa í Carlsen sem hætti í mótinu og talaði ófögrum orðum um forráðamenn alþjóðlega skáksambandsins.
Skv. „brjótandi“ frétt frá Take Take Take ætlar Carlsen að vera með í hraðskákinni sem eru gleðitíðindi!
„Laumumynd“ af leynifundi Carlsen og Anand Varaforseta FIDE.

- Auglýsing -

















