Flest augu íslenskra skákmanna beinast að Vigni Vatnari Stefánssyni á Hastings mótinu. Það er hinsvegar félagi hans úr Breiðablik Davíð Kolka sem er að stela senunni en hann hefur fullt hús eftir þrjár umferðir og aðeins Frakkinn IM Mahel Boyer sem er jafn honum.

Vignir hóf tvöfalda daginn með hvítt gegn skoskum FIDE-meistara Frederick Waldhausen Gordon (2355) í 2. umferð mótsins. Upp kom afbrigði í Catalan sem Vignir þekkir vel. Hvítur fórnar drottningu en fær eiginlega yfirburðatafl. Vignir missti þráðinn í miðtaflinu og varð að sætta sig við jafntefli.

Benedikt Briem þurfti líka að sætta sig við jafntefli gegn stigalægri andstæðing. Benedikt hafði stöðulega yfirburði með biskupaparið en náði ekki að nýta sér það og varð að gera sér jafntefli að góðu líkt og fóstbróðir hans, Vignir Vatnar.

Það kom í hlut Davíð Kolka að halda uppi heiðri Blikanna í þessari 2. umferð. Jack Liu (2225) tefldi einstaklega illa gegn Frakkanum og fékk Kolka yfirburðatafl. 14…g6! hefði einfaldað málin töluvert en staða svarts var einfaldlega samt of góð og Davið vann mjög örugglega.

Í seinni umferð dagsins var það aftur Davíð Kolka sem vann eina sigur Íslendinganna. David mætti þá úkraínska alþjóðlega meistaranum Svyatoslav Bazakutsa (2484). Davíð blés til sóknar og vann glæsilegan og sannfærandi sigur!

Ritstjórn hafði mjög gaman af eftirfarandi „flottræfilsleik“

29.Be7! skemmtilegur leikur! Ekki má taka biskupinn með 29…Dxe7 vegna 30.Dh6! og hvítur mátar

Vignir varð að sætta sig aftur við jafntefli, andstæðingur hans gaf ekki nægjanleg færi á sér með hvítu.

Loks skrapp Benedikt Briem með skrekkinn. Andstæðingur hans hefði getað mátað í 13 leikjum með bestu taflmennsku en…

50.e4?? gaf Benedikt séns á að sleppa fyrir horn. 50…Hh2+! og svartur nær gangandi þráskák.

Fjórða umferð fer fram á morgun og þar hefur Davíð Kolka svart gegn stórmeistaranum Alexander Kovchan (2455) en Vignir hvítt gegn FM Hugo De Melo Lux (2327). Benedikt fær Litháann Arunas Siupokas (1969) en hann er fyrrverandi landsliðsmaður Litháa í Pétanque neðansjávar skv. óstaðfestum heimildum heimildamanns Skak.is sem þjáist reyndar af ólæknandi lygasýki.

- Auglýsing -