Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson ef efstur á opnu hraðmóti í Danmörku, ØBRO x CXU New Years Tournament 2024. Tvær skákir eru tefldar flesta dagana en þó var aðeins ein skák í dag. Hilmir hefur 4,5 vinning að loknum fimm umferðum. Hilmir er þriðji í stigaröðinni á þessu 60 manna opna móti.
Hilmir mætti sænsku goðsögninni GM Jonny Hector (2443). Kóngur Hector lenti á vergangi og það sem verra var fyrir þann sænska er að fórnarkostnaður Hilmis var enginn og var Hilmir því nánast með fría sókn á kóng Hector án þess að fórna liði eða liðsskipan. Fór enda svo að vaxandi hótanir hvítu stöðunnar urðu Hector ofviða og Hilmir vann flottan sigur.
Hilmir er því efstur með 4,5 vinning en Lettinn IM Ritvars Reimanis (2339) stóð til vinnings í sinni skák þegar þetta er ritað og ætti að ná Hilmi að vinningum og mætast þeir því væntanlega í fyrri skák dagsins á morgun.














