Ný netmótasyrpa, sem ber nafnið, Síminn Invitational mun hefjast 5. janúar nk. Síminn Invitational er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.

Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Undanrásir fara fram sunnudaginn 5. janúar kl. 18 en sjálf 16 manna úrslitin hefjast 12. janúar.

Keppendur í 16 manna úrslitum eru valdir á eftirfarandi hátt:

  1. Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Íslandsmótinu í netskák 2024
  2. Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk hraðskákstig 1. janúar 2025 sem falla ekki undir nr. 1
  3. Íslandsmeistari kvenna í hraðskák 2024
  4. Fjórir efstu í undranrásunum sem fram fara 5. janúar.

Dagskráin er fyrirhuguð sem hér segir (gæti tekið smá breytingum).

  • 5. janúar – undanrásir  á Chess.com – 9-11 umferðir
  • 12. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
  • 19. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
  • 26. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
  • 9. febrúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
  • 9. mars – 8 manna úrslit – 2 einvígi
  • 16. mars – 8 manna úrslit – 2 einvígi
  • 23. mars – undanúrslit– 1 einvígi
  • 30. mars – undanúrslit – 1 einvígi
  • 6. apríl – úrslit

Í 16 og 8 manna úrslitum er fyrirhugað að hafa sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í undanúrslitum og er fyrirhugað að hafa 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Dagskrá og fyrirkomulag geta tekið smávægilegum breytingum.

Nánar verður greint frá fyrirkomulagi á næstu dögum.

 

- Auglýsing -