Stefán Steingrímur Bergsson lauk leik á opnu helgarmóti í Bristol á Englandi. 62 skákmenn taka þátt í þessu 7 umferða opnu móti sem teflt er á fjórum dögum.

Stefán gerði jafntefli við Tom Shephard (2043) í fjórðu umferð í gær en lagði svo John Guilfoyle (1983).

Stefán fékk sér góða indverska máltíð að loknum góðum keppnisdegi en lagði þó ekki í hið dýnamíska Vindaloo sem margir íslenskir skákmenn hafa látið mana sig í…með misgóðum afleiðingum! Máltíðin fór vel í Stefán sem gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Chris Beaumont (2167).

Stefán þurfti að ná flugi heim og var því ekki paraður í lokaumferðina.

- Auglýsing -