Stórmeistarinn Margeir Pétursson tekur þátt á Rilton Cup sem fram fer yfir áramótin 2024/25. Alls taka 115 keppendur þátt á þessu opna móti og er Margeir númer 25 í styrkleikaröðuninni.

Í 4. umferð í dag var skák Margeirs í beinni en hann varð að sætta sig við tap gegn FM Harald Logdahl (2300). Margeir fékk mjög þægilegt miðtafl gegn lokaðri sikileyjarvörn en missti þráðinn í miðtaflinu…vann sig aftur inn í skákina en lenti þá í mátneti í lokin.

Tefld er ein umferð á dag á Rilton Cup og lýkur mótinu 5. janúar.

- Auglýsing -