Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mættu Helgi Áss og Magnús Örn í Skipholtið.
Gestir þáttarins í dag eru Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák og Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu, segja skemmtilegar sögur, tala um stefnu eða framtíð skákarinnar, hvernig menn takast ólíkt á við mótlæti eins og tap og hvernig og hversu fljótir menn eru að „núllstilla“ sig, eins og Helgi orðar það. Hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -














