Öðlingamótinu er nú lokið en Sigurbjörn Björnsson hafði tryggt sér sigur fyrir lokaumferðina en baráttan um næstu sæti var spennandi. Sigurbjörn kláraði með stæl og vann öruggan sigur á mótinu. Aðrar skákir buðu upp á nokkuð óvænt úrslit!
Sigurbjörn hafði svart í lokaumferðinni gegn Þór Valtýssyni. Það kom væntanlega engum á óvart, hvorki Sigurbirni, Þór né einhverjum sem hefur fylgst með íslensku skáklífi undanfarna áratugi að London-systemið var á boðstólnum! Sigurbjörn valdi Reti-uppstillingu með skiptum litum en miðtaflið varð athyglisvert!
Þór fann rétta leikinn hér 20.d5! Bxd5 21.Bxb5 Bc6 en missteig sig þá.
22.b7!? leit nokkuð skemmtilega út en hvítur hefur yfirburðatafl eftir 22.Hxa6! þar sem 22…Db7 er svarað með 23.Ha7! og svartur tapar liði.
Sigurbjörn fékk í kjölfarið þægilegt endatafl þar sem hann gat teflt nokkuð pressulaust upp á sigur. Talsverðrar tækni var ennþá þörf en Sigurbjörn var klár í verkefnið og tók vinninginn!
Ingvar hafði í raun lítið að tefla upp á á öðru borði. Fyrsta sætið var ekki möguleiki útaf oddastigareglum en 2. sætið hefði átt að vera nokkuð öruggt. Jóhann Jónsson hafði hinsvegar aðrar hugmyndir! Jóhann breytti útaf sinni venjulegu kóngspeðsbyrjun og tefldi London-kerfið…mögulega með innblæstri frá Þór Valtýs!?
Ingvar tefldi traust og dýnamískt byrjanakerfi gegn London og virtist vera að halda góðri stjórn á skákinni. Einhverjir möguleikar gengu Ingvar úr greipum en eftir nokkur mistök kom grófur fingurbrjótur.
25…Rd3?? reyndist skelfilegur afleikur. Jóhann fann eina vinningsleikinn 26.Re4! og Ingvar gat ekki leiðrétt mistökin sem hann gerði nokkrum leikjum fyrr með 23…Re5? þar sem nokkrir leiki hefðu haldið betri möguleikum á svart.
Óvæntu úrslitin voru fleiri. Kristján Geirsson tefli lengst af skínandi vel gegn Lenku Ptacnikovu. Miðað við flæði skákarinnar framan af hefði Kristján í raun átt að vinna góðan sigur.
18…Rxe4?? var skelfilegur afleikur og Kristján stóð til vinnings eftir 19.Hd4!
Lenka hélt sér fast í vörninni og stöðu Kristjáns hrakaði jafnt og þétt. Í raun var Lenka kominn með vinningssénsana þegar hún þrálék í lokin en var líklegast undir áhrifum „fyrri vandræða“ í skákinni og sætti sig við jafnteflið.
Sigurlaug og Kjartan gerðu vinalegt „fyrrum formanna-jafntefli“ á fjórða borði og aðrar skákir höfðu lítil áhrif á toppbaráttuna. Vert er þó að minnast á aðdáunarverða seiglu Páls G. Jónssonar á tíræðisaldri!

Lokaniðurstaðan öruggur sigur Sigurbjörns.

Jóhann náði nokkuð óvænt 2. sæti eftir óvæntan sigur gegn Ingvari en Ingvar og Lenka skiptu með sér 3-4. sæti eftir sviptingar í lokaumferðinni.














