Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Fyrr í dag mætti Björn Þorfinnsson, forrverandi forseti SÍ, í Skipholtið.
Í kynningu um þáttinn segir:
Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Björn segir frá ferðum sínum á skákmót í Túnis í Afríku og norður í land á 20 ára afmælismót Goðans þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari. Björn stefnir á að bæta sig í skák á gamalsaldri eins og hann orðar það en hann hefur hækkað um tæplega 40 elo-skákstig á nokkrum mánuðum. Kristján Örn fór inn á Facebooksíðu Björns og spyr hvort hann kannist við setninguna: „Rosalega verður maður kærulaus í þessum hita“. Björn hlær og rifjar upp skemmtilegar sögur af sjálfum sér og fölskyldu sinni þegar þau ferðuðust til Ítalíu í fyrra. Björn segir: „þrjóturinn hún systir mín hefur nú deilt sinni reynslu af fjölskyldufríi stjórfjölskyldunnar […]. Í myndböndum hennar mátti sjá fjölskylduna að mestu leyti í sínu rétta ljósi enda erum við allt annað en eðlilegur hópur. Rúmlega helmingurinn sennilega með einhverjar greiningar og hinn helmingurinn í afneitun,“ segir Björn og skellihlær. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
















