Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mætti okkar bestu ungu skákkonur, Iðunn og Guðrún Fanney í Skipholtið.

Í kynningu um þáttinn segir:

Gestir Kristjáns Arnar eru nýkrýndir Norðurlandameistarar í skák. Þetta eru ungu landsliðskonurnar Iðunn Helgadóttir 17 ára og Guðrún Fanney Briem 15 ára sem báðar urðu Norðurlandameistarar í sínum flokkum eftir sigur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fór í Fredericia í Danmörku um þar síðustu helgi. FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og einn af þjálfurum stúlknanna og fararstjóri í ferðinni er einnig gestur þáttarins

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -