Glaðir Blikar í Halmsted!

Níu liðsmenn Skákdeildar Breiðabliks taka þátt í skákhátíðinni Halmstad Open sem fram fer í Halmstad í Svíþjóð dagana 29.-31. maí.

Fulltrúar Breiðabliks á mótinu eru:

Open
Gunnar Erik Guðmundsson
Markús Orri Jóhannsson
Sigurður Páll Guðnýjarson
Örvar Hólm Brynjarsson

u1750
Aðalsteinn Egill Ásgeirsson
Halldóra Jónsdóttir
Hallur Steinar Jónsson
Hrannar Már Másson
Þórarinn Víkingur Einarsson

Þjálfari hópsins er Daði Ómarsson.

Tefldar verða átta umferðir, þar af fjórar atskákir (30+12) og fjórar kappskákir (90+30). Mótið er tvískipt en annars vegar er boðið upp á opinn flokk og hins vegar u1600 stiga flokk. Teflt er í stórum sal í Hamstad Teater og eru aðstæður með besta móti. Sýnt er beint frá efstu borðum í báðum flokkum.

Að loknum fyrsta keppnisdegi, þar sem tefldar voru fjórar atskákir, er Gunnar Erik efstur Íslendinganna í opnum flokki með 3 vinninga. Í u1750 stiga flokknum hafa Hrannar Már, Aðalsteinn Egill og Þórarinn Víkingur  2 vinninga.

Örvar Hólm fékk tvenn bókaverðlaun í gær eftir að hafa unnið óvæntustu sigra umferðanna í skákum þar sem munaði mestu á skákstigum keppenda.

Fimmta umferð hófst í dag kl. átta að íslenskum tíma.

Hlekkur á Halmstad open
https://resultat.schack.se/ShowTournamentServlet?id=14211

Hlekkur á u1750
https://resultat.schack.se/ShowTournamentServlet?id=14212

Beinar útsendingar
https://lichess.org/broadcast/halmstad-open-2025/round-4/W16YJirE#boards

- Auglýsing -