Fjórða umferð á alþjóðlega 10th Marina Viva Porticcio Open 2025 fór fram fyrr í dag. Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson heldur áfram að standa sig best Íslendingana og gerði traust jafntefli við sterkan alþjóðlegan meistara í dag með svörtu.
Í efsta flokki eru íslensku keppendurnir eftirfarandi:
IM Hilmir Freyr Heimisson, IM Dagur Ragnarsson, WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og WIM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Í u2000 flokknum tefla:
Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir.
Tíu efstu borð eru í beinni í efsta flokki og Dagur var í beinni í dag, einn Íslendinga og mætti georgískum IM Nikoloz Petriashvili (2468) með svörtu. Dagur tefldi lengst af fína skák, þeir skiptust á að hafa örlítil undirtök en heilt yfir átti Dagur líklegast betri sénsa og komst m.a. í endatafl peði yfir en vinninginn var ekki að finna því miður og jafntefli niðurstaðan.
Dagur hefur 3 vinning af 4 eftir þessa skák.
Hilmir Freyr Heimisson vann í dag og heldur áfram að vinna sig inn í móti eftir brösuga byrjun. Í dag lagði hann Aleksandre Lecocq (2096) að velli.
Hallgerður Helga vann einnig í dag þegar Jean-Thomas Geronimi (2066) þurfti að lúta í dúk.

Jóhanna hefur ekki náð sér á strik og tapaði gegn Frank Triger (1957) með svörtu.
Í u2000 var Hrund með 2 vinninga af 3 mögulegum en tapaði sinni skák í dag og hefur 2 af 4.
Verónika hefur 1,5 vinning en hún tapaði líka sinni skák í dag.
Tvöföld umferð er á morgun en svo einföld umferð það sem eftir er móts, níu umferðir á sjö dögum eða sama dagskrá og á Reykjavíkurskákmótinu.
- Heimasíða mótsins (hægt að velja umferðir og stöðu þar en ekki auðvelt!)
- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Úrslit í aðalmótinu
- Úrslit í u2000 flokknum















