Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson fer brösulega af stað í lokuðum GM-flokki í Ceske Budejovice í Tékklandi. Hannes er næststigahæstur í flokknum á eftir tékkneska stórmeistaranum Tomas Polak.

Í fyrstu umferð um helgina gerði Hannes nokkuð tíðindalítið jafntefli með hvítu gegn GM Kraus í sikileyjarvörninni.

Í annari umferð tefldi andstæðingur Hannesar, IM Ondrej Svanda miðtaflið vel og yfirspilaði okkar mann sem varð að lúta í dúk.

Tapið í dag í 3. umferðinni var svekkjandi. Hannes fékk mun betra tafl eftir byrjunina en missti þráðinn í óræðu miðtafli. Andstæðingur hans, FM Robert Ernst náði tvisvar að fórna skiptamun á d2 reitnum og seinni fórnin leiddi til uppgjafar Hannesar.

Hannes hefur hálfan vinning að loknum þremur umferðum.

Guðni Stefán Pétursson tekur þátt í opna mótinu sem fer fram samhliða lokuðu flokkunum. Guðni hefur 1,5 vinning og er í smá stigagróða.

- Auglýsing -