Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mætti mættu Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, og Sigurður Þórðarson, athafnamaður, í þáttinn.
Í kynningu um þáttinn segir:
Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru þeir Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Sigurður Þórðarson, áhugamaður um skák og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni í síðustu tveimur Þorskastríðum Íslendinga við Breta. Sigurður er kaupmaður og hefur síðustu fjóra áratugina flutt inn náttúrulyfið „Rautt-eðalginseng“ sem er ræktað í 800-1000 metra hæð í Suður-Kóreu. Þeir félagar ræða skák, Þorskastríðin, kynni Sigurðar við Bobby Fischer en Fischer var mikill aðdáandi og reglulegur notandi „Rauðs-eðalginsengs,“ hvernig Sovétmenn/Rússar hjálpuðu Íslendingum að vinna öll Þorskastríðin, sérstaklega það fyrsta og síðasta (hótunin er sterkari en leikurinn) með því að láta í veðri vaka að þeir myndu taka vel í óskir Íslendinga um hernaðaraðstoð. Einnig segir Sigurður frá þegar LLoydsman, stærsti dráttarbátur Breta, sem var 2.400 tonn að stærð elti Albert, minnsta varðskip Íslendinga (201 tonn), inn í Berufjörð og keyrði stöðugt á varðskipið með þeim afleiðingum að skipið stórskemmdist.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.















