Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson endaði illa í lokaða GM flokknum í Ceske Budojovice í Tékklandi. Hannes tapaði báðum skákunum í lokaumferðunum tveimur. Hannes endaði með 3,5 vinning af 9 mögulegum.
Í 8. umferðinni mætti Hannes alþjóðlega meistaranum Stepan Hrbek og hafði hvítt. Í miðtaflinu náði Tékkinn mjög hættulegu frumkvæði og varð flæði skákarinnar einhvern veginn allt svörtum í hag. Tékkinn missti af nokkrum fallegum sleggjum en sigurinn virtist ekki í hættu þrátt fyrir það.
Í lokaumferðinni hafði Hannes svart gegn indverskum IM, Anuj Shrivatri. Hannes lenti undir stöðulegri pressu í miðtaflinu og á endanum komst Indverjinn í endatafl peði yfir sem hann náði að láta telja.
Hannes endaði því með 3,5 og tapar um 15 elóstigum á mótinu
Guðni Stefán Pétursson mátti þokkalega vel við una í opna flokknum, endaði með 5 vinning og náði sér í 22 stig í gróða. Guðni vann þá sem hann átti að vinna og náði í tvö góð jafntefli gegn 2200+ skákmönnum.


















