Lokamótið í mótaröð VignirVatnar.is í samstarfi við Snóker og Pool fór fram í gær. Mótið var sérstaklega styrkt af Coolbet með veglegum aukaverðlaunum. Eftir kapphlaup Vignis og Björns Þorfinnssonar var það stórmeistarainn sem varð hlutskarpastur eftir oddastigaútreikninga.

Mótið var ágætlega sótt miðað við hversu margir skákmenn eru erlendis að tafli. Veikti þetta toppinn eilítið og varð snemma ljóst að mótið yrði kapphlaup á milli Vignis Vatnars Stefánssonar og Björns Þorfinnssonar. Þeir lögðu báðir hvern andstæðinginn að fætur öðrum en gerðu þess á milli innbyrðis jafntefli í 4. umferð. Komu þeir báðir í mark með 8,5 vinning af 9 mögulegum og aðeins örfá oddastig sem skildu á milli.

Baráttan um 3. sætið var hörð en á endanum var það Dagur Andri Friðgeirsson sem átti gott mót og hirti um leið U2000 verðlaunin.

Baráttan um efsta stigalausa keppandann var ekki síður spennandi en þar endaði Kestutis Lileikis í efsta sæti.

Vignir Vatnar varð efstur á eigin móti
Björn Þorfinnsson var þéttur á mótinu og gerði aðeins jafntefli við Vigni en vann rest.
Dagur Andri var í fínum gír, tók 3. sætið og U2000 verðlaunin. Eftir stigahækkunina er hann þó dottinn úr U2000 hópnum!
Kestutis Lileikis varð efstur stigalausra

Þarmeð er þessari skemmtilegu mótaröð lokið á þessu tímabili en hver veit nema þráðurinn verði tekinn upp aftur fljótlega!

- Auglýsing -