Eftir opna mótið á Korsíku var splæst í hraðskákmót í fjöllunum í Quenza. Fjöldi stórmeistara voru mættir til leiks og mótið gríðarsterkt.
Á endanum voru það Daniel Dardha, stigahæsti Belginn og fyrrverandi Heimsmeistari kvenna Hou Yifan sem urðu hlutskörpust með 8 vinninga af 9 og höfðu þar Laurent Fressinet og fleiri undir.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir nýkjörinn forseti SÍ náði sér vel á strik á mótinu og endaði með 6,5 vinning og hlaut 2. sæti í kvennaflokki. Almira Skripchenko tók kvennaverðlaunin þar sem Hou Yifan vann aðalverðlaun á mótinu. Jóhanna því í öðru sæti í kvennaflokki á þessu vel skipaða móti!
Skákir Jóhönnu á mótinu í beinni. Hægt er að ýta á punktana til að velja skákir.
- Auglýsing -


















