Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson eru nú staddir í „Stóra eplinu“ og tefla í lokuðum IM-flokkum. Teflt er í Marshall skákklúbbnum og ber mótið heitið „Marshall Summer Six Day“ og er eins og nafnið gefur til kynna keyrt í gegn á sex dögum, þrír dagar tvöfaldir keppnisdagar.

Báðir eru þeir þriðju stigahæstu í sínum flokkum og þurfa því ágætis skor til að halda sínum stigum eða græða stig.

Hilmir hóf leik í fyrstu umferð með svörtu gegn 2150 stiga manni, Steve Wongso. Hilmir komst peði yfir í endatafl en hafði tvípeð og öll peðin á sama væng. Afleikur hvíts í 57. leik hjálpaði til

57.Hg5?? var klaufalegur og eftir 57…f6 er hvítur í vandræðum. Svartur hótar …Hd6 og Hxh5 og  Hf5 er svarað með …Kg6 og hrókurinn á enga reiti.

Sigur í fyrstu umferð en það sýnir hvað skákin er erfið í dag hversu mikið þarf að hafa fyrir því að vinna skákmenn næstum 200 elóstigum lægri! Steve er reyndar 16 ára og væntanlega ágætis efni.

Flokkur Dags:

Dagur vann sína skák í fyrstu umferð. GM flokkarnir eru tveir IM flokkarnir eru þrír. Dagur virðist hafa dregið stutta stráið því að aðeins einn flokkur er ekki í beinni útsendingu og er það hans flokkur. Ritstjórn skilst að skákirnar verði slegnar inn og verður þeim bætt við eins og hægt er. Andstæðingur Dags var WIM Davaakhuu Munkhzul frá Mongólíu.

Dagur og Hilmir tefla tvær skákir í dag.

- Auglýsing -