FIDE birti ný at- og hraðskákstig þann 1. júlí síðastliðinn. Vignir Vatnar Stefánsson er að stinga af í hraðskák á meðan stigahæstu atskákmenn láta lítið á sér bera.

Atskák

Stigahæstu skákmenn og konur

Helgi Ólafsson (2496) er stigahæsti atskákmaður landsins. Aðeins einn skákmaður á topp 20 listanum tefldi atskák í mánuðinum. Lenka Ptácníková (2109) er stigahæst skákkvenna en nýkjörinn forseti Skáksambandsins hækkaði um 15 stig í öðru sætinu.

Ungir og gamlir

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2287) er stigahæstur ungra skákmanna og Helgi Ólafsson (2496) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Hraðskák

Stigahæstu skákmenn og konur

Vignir Vatnar Stefánsson (2551) er á góðu skriði í hraðskák og gæti stefnt á 2600 ef hann heldur svona áfram. Margir af stigahærri skákmönnum landsins áttu góðan mánuð.

Olga Prudnykova (2116) er stigahæst skákkvenna en 4 næstu á listanum hækkuðu allar í mánuðinum og forskot Olgu minnkar því milli mánaða.

Ungir og gamlir

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2259) er stigahæstur ungra skákmanna. Ingvar Wu Skarphéðinsson (2214) nálgast hann í öðru sætinu.

Hannes Hlífar Stefánsson (2433) styrkti stöðu sína í efsta sæti á vizkualdrinum með 11 stiga hækkun.

Breytingar

Í atskák hækkaði Jóel Tobiasson Helmer (1623) mest eða um 68 stig.

Í hraðskákinni hækkaði Karma Halldórsson (1798) um heil 174 stig en aðrir í 100 stiga klúbblun voru Milosz Úlfur Olszewski (1601), Nökkvi Hólm Brynjarsson (1631) og Theódór Helgi Eiríksson (1901).

Fjöldi

Kristófer Orri Guðmundsson (1994) tefldi flestar atskákir í mánuðinum en Vignir Vatnar Stefánsson var duglegastur í hraðskákinni með 43 tefldar.

Nýir á lista

Nýir á lista eru óvenju stigaháir þennan mánuðinn. Í atskákinni kemur Benedikt Jónasson inn með 2178 stig og í hraðskákinn kemur Ágúst Sindri Karlsson inn á lista með 2197 stig sem kemur honum beint í 13. sæti á vizkualdrinum.

 

 

- Auglýsing -