Landsliðskonan Iðunn Helgadóttir (1876) tekur nú þátt í B-flokki á opna mótinu í Zadar í Krótatíu. 93 keppendur eru í B-flokki og er Iðunn númer 21 í stigaröðinni. Helgi Pétur Gunanrsson (1804), farðir Iðunnar, er einnig með á mótinu og er númer 37 í stigaröð.
Mótið hófst á miðvikudaginn og svo var tefld tvöföld umferð í gær.
Iðunn hóf mótið á tveimur sigrum, lagði fyrst Agniesku Malas (1504) frá Póllandi og svo Julíu Branka (1733) einnig frá Póllandi.
Skákin gegn Agniesku nokkuð auðveld, Bg4 var óvenjulegt taktískt þema þar sem drottningin á a4 kom að góðum notum!
Skákin gegn Juliu var erfiðari. Segja má að aftur hafi a4 reiturinn verið mikilvægur, Iðunn trikkaði peð af Juliu á þeim reit og frípeð hennar á a-línunni gerði síðar út um skákina.
Í seinni umferðinni í gær gerði Iðunn svo jafntefli við Reinhard Kuntner (2007). Reinhard bauð snemma jafntefli eftir að drottningarnar fóru af borðinu.
Í fjórðu umferð hefur Iðunn svart gegn Josif Kapetanić (1951). Iðunn hefur 2,5 vinning.
Helgi Pétur tapaði einmitt fyrir þessum Kapetanic í 2. umferð eftir að hafa lagt stigalausan andstæðing í fyrstu umferð. Helgi gerði svo jafntefl í 3. umferð við Natalíu Branka sem er væntanlega systir Júlíu Brönku sem að Iðunn mætti! Helgi hefur 1,5 vinning.

















