Le Kock mótaröðin – fjórða mótið

    0
    474
    Hvenær:
    6. ágúst, 2025 @ 19:30 – 22:00
    2025-08-06T19:30:00+00:00
    2025-08-06T22:00:00+00:00
    Hvar:
    Le Kock
    Tryggvagata 14
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    3000
    Le Kock mótaröðin - fjórða mótið @ Le Kock | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Fjórða mótið fer fram miðvikudagskvöldið 6. ágúst kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík).

    Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur eins og þriðja mótið.

    Mótin verða 8 í heildina og eru dagsetningarnar á þeim yfirleitt fyrsti miðvikudagurinn í hverjum mánuði.

    Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

    1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    2. 40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

    U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

    Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

    Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi. 

    Svona verða stigin eftir sætum, frá fyrsta og niður: 12, 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.

    Stig í mótaröðinni eftir þrjú mót

    1. GM Vignir Vatnar Stefánsson – 24 stig (X + 12 + 12)

    2. IM Björn Þorfinnsson – 19 stig (10 + 7 + 2)

    3. GM Hannes Stefánsson – 18 stig (12 + 6 + X)

    4. GM Helgi Áss Grétarsson – 16 stig (X + 8 + 8)

    5. FM Örn Leó Jóhannsson – 13 stig (X + 10 + 3)

    6. Arnar Milutin Heiðarsson – 12 stig (0 + 5 + 7)

    7. IM Dagur Ragnarsson – 10 stig (8 + 2 + X)

    8. FM Bárður Örn Birkisson – 10 stig (6 + 4 + 0)

    9. FM Sigurbjörn Björnsson – 10 stig (4 + 0 + 6)

    10. Ingvar Wu Skarphéðinsson – 10 stig (X + X + 10)

    11. GM Bragi Þorfinnsson – 8 stig (7 + 0 + 1)

    12. Davíð Kolka – 6 stig (0 + 1 + 5)


    1. FM Símon Þórhallsson – 5 stig (5 + X + X)

    2. IM Dagur Arngrímsson – 4 stig (X + X + 4)

    3. FM Róbert Lagerman – 3 stig (3 + 0 + 0)

    4. FM Þorsteinn Þorsteinsson – 3 stig (0 + 3 + 0)

    5. CM Björn Holm Birkisson – 2 stig (2 + 0 + 0)

    6. Benedikt Briem – 1 stig (1 + 0 + 0)

    12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

    1. X TBA

    2. X TBA

    3. X TBA

    Þátttökugjald á mótið er 3.000 kr og greiðist hér:
    Kennitala: 570418-2030 – Reikningsnúmer: 0133-26-013982

    Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!

    Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 ára aldri þurfa að vera með forráðamann með sér.

    Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!

    Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is

    - Auglýsing -