Hin frábæra Le Kock mótaröð hélt áfram miðvikudagskvöldið 6. júní. Alla jafna munu þessi mót vera fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði nema það rekist á aðra viðburði. VignirVatnar.is í samstarfi við Le Kock, Deig og Ölvisholt hafa blásið til þessarar stórglæsilegu mótaraðar þar sem glæsileg verðlaun eru í boði!

Að þessu sinni mættu tæpir 60 skákmenn til leiks á Le Kock á Tryggvagötu.  Keppendafjöldinn passaði eiginlega akkúrat fyrir salinn og spurning hvort keppendafjöldi verði takmarkaður við þennan fjölda í næstu mótum.

Mótið hófst tímaleg og hélt góðu tempói allan tímann. Eins og á fyrsta mótinu var ljóst að baráttan yrði jöfn og spennandi þar sem keppendalistinn var mjög jafn og harður og mikið af skákmönnum sem geta veitt titilhöfum skráveifur…eins og kom á daginn!
Björn mætti Vigni í 5. umferð í toppbaráttuskák þar sem hann vann mann en gleymdi sér svo á klukkunni.
Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson og stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson voru bestir af rásblokkinni og höfðu fullt hús eftir fjórar umferðir og mættust innbyrðis. Björn trikkaði riddara af Vigni í spennandi stöðu og virtist ætla að ná að knésetja Carlsen-banann. Vignir var kominn hálfa leið í „hlaupkallinn“ þegar hann gíraði sig upp í klukkubarning, bombaði nokkrum leikjum á Björn og á endanum gleymdi Bjössi sér og féll á tíma.
Jafntefli varð niðurstaðan í þessum þungaviktarslag

Vignir hélt forystunni áfram eftir jafntefli við Helga Áss í 6. umferð en stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson náði að stoppa Vigni í sjöundu umferð og þá voru Hannes, Helgi Áss og Örn Leó orðnir efstir í æsispennandi móti með 6 vinninga af 7.

Helgi Áss lagði Hannes að velli í næstsíðustu umferð og Örn vann Róbert Lagerman. Þeir voru því efstir með 7 af 8 fyrir lokaumferðina. Í lokaumferðinni töpuðu þeir hinsvegar báðir, Örn Leó gegn Vigni og Helgi Áss gegn Birni Þorfinnssyni. Vignir læddist því í efsta sætið með 7,5 vinning en hinir þrír ásamt Hannesi enduðu allir með 7 vinninga og réðist innbyrðis röð þeirra á oddastigum.

Mótaröðin ætlar að vera skemmtileg. Skak.is hvetur enn og aftur skákmenn til að taka þátt, til að styðja þetta frábæra framtak hjá mótsaðilum og styrktaraðilum og til að skoða matnin á Le Kock. Skákstjórnin tók „Fish Dish“ að þessu sinni og lét vel að honum!

 

Lokastaðan – efstu menn:

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson – 7,5 vinningar
    60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

  2. FM Örn Leó Jóhannsson – 7 vinningar
    40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

  3. GM Helgi Áss Grétarsson – 7 vinningar
    20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

U2000 Verðlaun

Þorsteinn Jakob Þorsteinsson tók U2000 verðlaunin eftir harða baráttu í lokaumferðinni.

U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsti konan

Baráttan var hörð um kvennaverðlaunin þar sem fjórar landsliðskonur mættur til leiks. Jóhanna Björg varð hlutskörpust og náði sér í fínan stigagróða og góð höfuðleður á þeirri leið.

Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsti stigalausi

Jónas Björn Pálsson kom sá og sigraði í flokki stigalausra.

Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Stig í mótaröðinni eftir tvö mót

  1. GM Hannes Stefánsson – 18 stig (12 + 6)
  2. IM Björn Þorfinnsson – 17 stig (10 + 7)
  3. Vignir Vatnar Stefánsson – 12 stig (0 + 12)
  4. IM Dagur Ragnarsson – 10 stig (8 + 2)
  5. FM Bárður Örn Birkisson – 10 stig (6 + 4)
  6. Örn Leó Jóhannsson – 10 stig (0 + 10)
  7. Helgi Áss Grétarsson – 8 stig (0 + 8)
  8. GM Bragi Þorfinnsson – 7 stig (7 + 0)
  9. FM Simon Þórhallsson – 5 stig (5 + 0)
  10. Arnar Milutin Heiðarsson – 5 stig (0 + 5)
  11. FM Sigurbjörn Björnsson – 4 stig (4 + 0)
  12. FM Róbert Lagerman – 3 stig (3 + 0)
    _______________________________________
  13. Þorsteinn Þorsteinsson – 3 stig (0 + 3)
  14. CM Björn Holm Birkisson – 2 stig (2 + 0)
  15. Benedikt Briem – 1 stig (1 + 0)
  16. Davíð Kolka – 1 stig (0 + 1)

Ljóst að baráttan verður hörð um 12 efstu sætin og nokkuð mikill fjöldi sterkra skákmanna sem eiga enn séns á að bætast í hópinn.

➕ Athyglisverðar stigabreytingar:

  • WCM Guðrún Fanney Briem +53,6

  • Guðjón Heiðar Valgarðsson: +41,8

  • Halldór Ingi Kárason +35,4
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir +34,4
  • FM Örn Leó Jóhannsson: +34

Hægt er að skoða allar skákir og einstök úrslit á Chess-Results.

Myndasería frá öðru mótinu (þakkir til Unu Strand)

„Langa röðin“ á Le Kock. Keppendur þarna keppast um að komast á efstu borðin.
Landsliðakonurnar Guðrún Fanney Briem og Iðunn Helgadóttir mættust eins og á fyrsta mótinu. Guðrún hafði betur í þetta skiptið en Iðunn tók kvennaverðlaunin á fyrsta mótinu.
Elvar Örn úr Miðbæjarskák mætir hér fyrrum Evrópumeistara í Kotru, Inga Tandra Traustasyni.
Hér hefur vafalítið verið þung pósabarátta í þessari skák.
Roberto til hægri tók U2000 verðlaunin á síðasta móti en náði ekki sama flugi að þessu sinni.
Sverrir Hákonarson til hægri hefur verið áskrifandi að U2000 verðlaunum á Snooker og Pool mótaröðinni en vann ekki til verðlauna að þessu sinni. Jónas tók verðlaun sem besti stigalausi skákmaðurinn.
- Auglýsing -