Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson er genginn í Taflfélag Vestmannaeyja (TV). Jóhann þarf vart að kynna fyrir íslenskum skákmönnum en hann er sá íslenski skákmaður sem lengst hefur náð á alþjóðlegum vettvangi ásamt Friðriki Ólafssyni heitnum.
Jóhann vakti heimsathygli þegar hann árið 1987 varð í 1. – 2. sæti á millisvæðamótinu í Szirák í Ungverjalandi og vann sér þá rétt til að tefla um áskorendaréttinn á Garry Kasparov sem þá var heimsmeistari. Árið eftir lagði Jóhann Viktor Korchnoi að velli í frægu áskorendaeinvígi en tapaði fyrir Anatoly Karpov í fjórðungsúrslitum.
Jóhann keppti á Heimsmeistaramóti FIDE sem haldið var með útsláttarfyrirkomulagi árin 1998 og 2004. Jóhann hefur sex sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 2016, og hann hefur tvisvar sinnum orðið Norðurlandameistari. Jóhann vann sér svo rétt til að keppa á Heimsbikarmóti FIDE árið 2017.
Jóhann mun styrkja lið TV til muna en félagið hyggur á strandhögg á Íslandsmóti skákfélaga í haust.













