Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mætti FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson í settið í Skipholtið.

Í kynningu um þáttinn segir:

Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Sigurbjörn er FIDE meistari og Íslandsmeistari í skák með félagsliði sínu Skákdeild Fjölnis. Sigurbjörn ræðir skákferil sinn og segir frá hvernig hann stúderar skák og undirbýr sig gegn andstæðingum sínum. Hann nefnir ýmis skákforrit og skákgagnagrunna og lýsir hvernig undirbúningur skákmanna hefur þróast í gegnum tíðina með tilkomu tölva, snjallsíma og skákforrita. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu en hlusta má á þáttinn í spilaranum.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -