Fjórum umferðum er nú lokið á hinu tólfta árlega Washington International skákmóti. Meðal keppenda er íslenski stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson sem teflir aftur eftir nokkurt hlé. Héðinn hefur lítið teflt síðan á Íslandsmótinu 2024 ef undan er skilið mót í Houston í síðasta mánuði sem lítið fór fyrir.
Héðinn var nokkurn veginn á pari á því móti og því ekki alveg æfingalaus fyrir mótið í Washington sem hófst um helgina.
Tefldar eru tvær skákir á dag eins og ansi algengt er orðið nú til dags. Fjórar umferðir fóru því fram um helgina.
Í fyrstu umferð náði Héðinn að narta fram sigur. Hann náði að hanga á umframpeði fram í endatafl og láta það telja í tvöföldu hróksendtafli.
Jafntefli kom í 2. umferð með svörtu. Skákin vel tefld, engin mistök gerð á báða bóga og þrátt fyrir að vera peði undir í endatafli var kóngur Héðins á leið á e5 þegar samið var og staðan dautt jafntefli.
Skemmtilegur tæknilegur sigur kom í 3. umferð þar sem Héðinn náði sér í mikið rými og kreysti fram vinning í endataflinu.
Héðinn virðist hafa unnið í 4. umferð en útsendingin misheppnast, greinilega vantar endann á skákinni.
Séu úrslit á chess.com í 4. umferð rétt hefur Héðinn 3,5 vinning eftir 4 umferðir og má vel við una, hefur gengið vel gegn stigalægri andstæðingum og andstæðingurinn í 4. umferð yfir 2400 elóstigum!
Ekki liggur fyrir pörun í 5. umferð en Héðinn ætti að fá sterkan titilhafa næst!















