Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson átti ágætis mót þegar hann tók þátt í í sterku móti í Austurríki, 38. Salzburger Sonnenterrasse Open, sem fram fór dagana 2.–10. ágúst í St. Veit im Pongau. Guðmundur kom í mark með 6 vinning og endaði í 4. sæti og hækkaði eilítið á stigum.
Við skildum síðast við Guðmund með 4,5 vinning eftir 6 umferðir. Í sjöundu umferð mætti hann stórmeistaranum Andrei Shchekachev (2468). Skákin varð hörkubaráttuskák en í miðtaflinu varð d-peð Guðmundur stórhættulegt og út frá pressunni sem myndaðist náði Guðmundur mátsókn sem heppnaðist.
Í næstsíðustu umferð gerði Guðmundur jafntefli með svörtu við króatískan stórmeistara, Zoran Jovanovic. Traust skák hjá Gumma.
Í lokaumferðinni kom svekkjandi tap gegn stigalægri andstæðing. Guðmundur hafði svart og ætlaði sér greinilega að tefla til sigurs og ná eins góðu sæti og hægt var. Mögulega fór Gummi of snemma í aðgerðir þegar hann fékk þægilegt tafl með svörtu og þegar þær mistókust sat svartur eftir með lélega liðsskipan og liðstap fylgdi í kjölfarið.
Lokaniðurstaðan semsagt 6 vinningar af 9 og var Gummi bestur á stigum af þeim sem fengu 6 vinninga og endaði í 4. sæti. Horvarth sem Gummi tapaði fyrir í 6. umferð var í sérflokki og fékk 8 vinninga og tveir skákmenn enduðu með 6,5 vinning.

- Heimasíða mótsins: https://schachopen.at
- Staða og úrslit: chess-results













