Héðinn Steingrímsson teflir í b-flokki sígilda vormótsins í St. Louis.

Áttundu umferð lauk í gær á tólfta árlega Washington International skákmóti þar sem Héðinn Steingrímsson er meðal keppenda. Héðinn byrjaði vel og hafði 3,5 vinning að loknum 4 umferðum og hefur ekki stigið af bensíngjöfinni síðan þá.

Í fimmtu umferð mætti Héðinn alþjóðlegum meistara, Wang (2330). Sá bandaríski hafði verra tafl en lék af sér og Héðinn nýtti sér það með nákvæmum leikjum og fann leiðina til vinnings.

Segja má að fyrsta alvöru skákin hafi því komið í 6. umferð gegn hraðskáksérfræðingnum og stórmeistaranum Andrew Tang (2529). Héðinn hafði hvítt og þurfti að verjast örlitlu frumkvæði svarts en hafði það í lokin og jafntefli niðurstaðan.

Jafntefli var aftur niðurstaðan í 7. umferð gegn sterkum kínverskum stórmeistara, stutt skák.

Héðinn tryggði stöðuna sína á toppnum með sigri í 8. umferð í gærkvöldi en þá lagði hann bandaríska stórmeistarann David Brodsky (2524) að velli með svörtu einstaklega sannfærandi í skemmtilegri skák.

Fyrir lokaumferðina er Héðinn ásamt þremur öðrum í efsta sæti með 6,5 vinning af 8 mögulegum.

- Auglýsing -