Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson sitja nú að tafli á Opna Spilimbergo-mótinu á Ítalíu þar sem sjö umferðum er lokið. Bárður Örn hefur hlotið 3,5 vinning eftir erfiða byrjun en virðist vera að vinna sig inn í mótið með jafnteflum og sigrum í bland nú í seinustu umferðum. Björn Holm er skammt á eftir með 3 vinninga, hefur fengið sveiflukenndari paranir en ekki náð úrslitum gegn stigahærri skákmönnum.
Björn var í beinni í 1. umferð
Bárður var beint í 2. umferð
Mótið er fjölmennt og vel skipað, með rúmlega 200 keppendur, þar á meðal marga stórmeistara og alþjóðlega titilhafa. Tvær umferðir eru eftir þar sem tvíburarnir reyna vafalítið að kítta í stigatöpin, Bárður er að tapa 19 stigum en Björn 5 stigum.
- Auglýsing -
















