Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 hefst í kvöld með tveimur viðureignum í 16-manna úrslitum. Keppendur unnu sér inn keppnisrétt ýmis með árangri á mótinu í fyrra, stigum eða í gegnum undanmót. Útsending kvöldsins hefst 19:00 og einvígin fljótlega eftir það.
Í kvöld mætast:
Bragi Þorfinnsson og Dagur Andri Friðgeirsson mætast í fyrri viðureign kvöldsins og flestir myndu veðja á Braga í viðureign þessara Fjölnismanna. Bragi fór í 8-manna úrslit í fyrra og vann sér keppnisréttinn þannig. Bragi er stigahærri á öllum stigum, kappskák, hraðskák og netskákstigum og er auk þess stórmeistari í skák. Dagur kom sterkur inn í gegnum undankeppnina og hefur sýnt að hann getur náð í úrslitum gegn sterkustu skákmönnum Íslands í hraðskák. Spurning er hinsvegar hvort Dagur nái að skáka Braga í 6-skáka einvígi á jafn stóru sviði og þetta í fyrsta skipti!
Símon Þórhallsson og Bárður Örn Birkisson mætast í seinni viðureign kvöldsins. Hér ætti fyrirfram að vera jafnari og aðeins meira spennandi viðureign á ferðinni. Báðir eru þeir FIDE meistarar og ekki munar miklu á stigum þeirra. Hér mætti búast við að sá sem verður fyrri til að ná meðbyr í einvíginu sé orðinn sigurstranglegri.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast
- Símon-Bárður – Birkir-Jóhann
- Dagur R-Björn Þ – Bragi-Dagur Andri
- Róbert-Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
- Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
- 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.

















